Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[12:34]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum að greiða hér atkvæði um ýmis mál og auðvitað er það þannig í þessu fyrirkomulagi að við getum haft alls konar skoðanir á því hvað við erum að greiða atkvæði um og hvað ekki. Ég ætla ekki að ræða um það. Ég ætla hins vegar ræða það, og vil að öllum sé ljóst að það er mín skoðun: Það er enginn bragur á því að á meðan Úkraínumenn eru að berjast fyrir sínu lífi sínu, sínu landi og okkar frelsi að við séum ekki að framlengja það viðskiptafrelsi sem við settum á að þeirra ósk. (Gripið fram í: Heyr, heyr)