fjölmiðlar.
Herra forseti. Ég kem bara hér upp til að taka undir orð hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það er enginn bragur á því að fella niður þennan stuðning við Úkraínu. Ég kom þó aðallega upp til að tala um stuðning við það mál sem við greiðum hér atkvæði um er varðar fjölmiðla og stuðning við einkarekna fjölmiðla. Ég vil ítreka hvatningu mína til hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra að flýta vinnu við framtíðarskipulag þessara styrkja, sérstaklega þegar við horfum á fyrirsjáanleika styrkjanna; að ekki sé verið að úthluta styrkjum frá ári til árs heldur séum við með þetta í fastara formi.
Mér hrýs aðeins hugur við að heyra af stefnu Sjálfstæðismanna sem vilja fella niður þessa beinu styrki og það voru ýmis orð höfð uppi í nefndaráliti. (Forseti hringir.) Ég bara treysti því að fyrri orð hæstv. ráðherra gildi í dag, eins og áður, um þann hug hennar að styðja við einkarekna fjölmiðla. Það er mikilvægt í lýðræðissamfélagi og ég styð þetta mál.