kosningalög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að þakka hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir gott samstarf í tengslum við þetta mál og sérstaklega framsögumanni nefndarinnar fyrir mjög góða vinnu við undirbúning þess hér inni í þingsal. Ég vildi árétta tvennt sem er að finna í nefndaráliti nefndarinnar sem mér finnst mikilvægt að við höldum til haga. Það er annars vegar að við gerum skýra kröfu á ráðuneytið, að það komi með fullmótaðar tillögur að svokallaðri næmnisgreiningu á næsta þingi. Mér finnst það mjög mikilvægt, líka til að minnka mögulegan framtíðarágreining um hvenær þörf sé á endurtalningu og um aðra mikilvæga þætti. Sömuleiðis atriði sem skipti okkur í Pírötum miklu máli sem var að aðstæður og framkvæmd, þ.e. ástæður fyrir uppkosningu og hvernig það er metið, hvort þær ástæður séu fyrir hendi; að þetta sé allt saman skoðað í kjölinn. Okkur finnst þessi lagarammi ekki skýr og það má nú læra af því (Forseti hringir.) sem á undan er gengið, eins og t.d. með kosningarnar 2021. (Forseti hringir.) Það er mikilvægt að það verði farið í að skoða þá vinnu (Forseti hringir.) og það er líka að finna í nefndarálitinu og ég árétta það hér með.