Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[12:45]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það er ástæða til að taka undir þakkir til fulltrúa í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir þá góðu vinnu sem hér er að skila samstöðu við afgreiðslu frumvarps til kosningalaga. Ég vil líka þakka hv. þingkonu Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir framsöguna og að halda utan um málið. Það er mjög mikilvægt þegar við gerum breytingar á kosningalögunum að það ríki um þær breytingar samstaða á hinu háa Alþingi og það hefur náðst í þetta sinn.

Ég vil líka nota þetta tækifæri og árétta að þegar löggjafinn gerir miklar breytingar, eins og gerðar voru og kosningalagabálkinum sem gekk í gildi 1. janúar 2022, þá verður að gefa rúman tíma til innleiðingar og reglugerðaskrifa. Aðeins þannig er hægt að innleiða ein mikilvægustu lög á Íslandi með réttum hætti.