Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[12:46]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Já, það skiptir alveg gríðarlega miklu máli að um svona löggjöf sé friður og samstaða. Það er sem betur fer þannig að nefndinni auðnaðist það að ná saman um flesta hluti mjög fljótt og rökræða sig niður á góða niðurstöðu í öðrum málum. Ég tek undir það sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði hér áðan, að þessar breytingartillögur sem eru með frumvarpinu eru allar mjög til bóta. Ég ætla líka að taka undir þakkir til hv. þm. Berglindar Óskar Guðmundsdóttur sem er framsögumaður á málinu og hefur leitt þessa vinnu með mikilli prýði. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum samstillt í þessari löggjöf.