Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frysting fjármuna.

974. mál
[12:50]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er rétt að fram komi að það sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson fer hér yfir varðandi þau vinnubrögð sem voru í nefndinni er að hluta til rétt. Umsagnir voru ekki sendar út fyrr en í seinni hluta vinnu nefndarinnar en það var þó gert. Það ber þó að taka fram að málið hafði verið unnið af öllum helstu hagaðilum í stjórnkerfinu áður en það kom inn til þingsins og m.a. í samráðsgátt og því til viðbótar bárust umsagnir frá Skattinum og Seðlabankanum sem horft var til við endanlega afgreiðslu þessa máls. Þó að þessir hnökrar hafi hugsanlega verið á málsmeðferð frumvarpsins í nefndinni þá er ég þess fullviss að það komi ekki að sök í lokaniðurstöðu þess.