Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér í dag fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028. Tillagan byggir á 5. gr. laga um opinber fjármál hvar segir að ráðherra skuli leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Áætlunin skal reist á grundvelli fjármálastefnu og meginmarkmið hennar er að stuðla að stöðugleika í hagkerfinu og tryggja sjálfbærni opinberra fjármála.

Að vanda bárust margar umsagnir og nefndin fékk á sinn fund fjölda umsagnaraðila sem og ráðherra ríkisstjórnarinnar sem hver um sig fór yfir helstu markmið, mælikvarða, áskoranir og tækifæri á sínum málefnasviðum. Ég vil fyrir hönd fjárlaganefndar þakka öllum umsagnaraðilum og gestum fyrir komuna.

Sú áætlun sem við höfum hér til umfjöllunar hefur verið uppfærð miðað við nýjustu hagspá Hagstofu Íslands og fjallar í meginatriðum um hagstjórn hins opinbera og framvindu efnahagsmála á komandi árum. Vegna aukinnar verðbólgu má sjá mikla aukningu í nafnvirði heildartekna og gjalda á tímabilinu sem aukast að jafnaði um 130 milljarðar á ári. Áætlað er að mikill bati verði á afkomu ríkissjóðs á þessu ári en að hann dragist heldur saman á komandi árum.

Á tekjuhlið er fyrri áætlun uppfærð miðað við breytingar sem leiða af nýrri þjóðhagsáætlun. Í greinargerð tillögunnar koma einnig fram áform um breytingar á sköttum, svo sem lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði, hækkun tekjuskatts lögaðila, áform um aukna gjaldtöku í ferðaþjónustu, hækkun fiskeldisgjalds, auk þess sem endurskoðun á lögum um veiðigjald stendur yfir og gert er ráð fyrir að a.m.k. 13 milljörðum í tekjuauka samkvæmt því.

Á gjaldahlið er uppfærsla frá fyrri áætlun sem einnig miðast við uppfærða þjóðhagsspá, líffræðilegar forsendur og uppfærslu á útgjaldaskuldbindingum ráðuneyta. Lögð er áhersla á að forgangsraða verkefnum til handa þeim sem minna mega sín auk aðhalds og aðgerða til að draga úr þenslu. Aðhaldið felur m.a. í sér að almenn aðhaldskrafa er aukin, þó með undantekningum, og leggst aukið aðhald á aðalskrifstofur Stjórnarráðsins, enda mikilvægt að það fari fram með góðu fordæmi. Þá eru afkomutryggingarkerfin og velferðarþjónustan áfram undanþegin aðhaldi og engin aðhaldskrafa er gerð á almanna-, atvinnuleysis- eða sjúkratryggingar eða heilbrigðis- og öldrunarstofnanir. Þá er gert ráð fyrir að útgjaldarammi í rekstri ríkisins minnki á gildistíma áætlunarinnar, m.a. með nýtingu tækifæra til stafvæðingar í þjónustu og hagræðingar í húsnæði stofnana. Við erum að forgangsraða áfram í þágu áframhaldandi styrkingar innviða, t.d. með uppbyggingu nýja Landspítalans. Við erum að bæta afkomu ríkissjóðs og með því frestum við tilteknum völdum framkvæmdum, m.a. nýbyggingu Stjórnarráðsins, samhæfingarmiðstöð o.fl.

Sýnin er skýr sem birtist í fjármálaáætlun og til viðbótar við hana hefur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákveðið að ráðast í áframhaldandi aðgerðir til að takast á við vexti og verðbólgu. Áform ríkisstjórnarinnar styðja við aðgerðir Seðlabanka Íslands og sporna gegn þenslu, bæta afkomu ríkissjóðs og verja áfram þau sem minnst bjargráð hafa gagnvart áhrifum verðbólgunnar.

Það hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni að mikill hagvöxtur hefur verið hér á landi síðustu ár og batnar afkoma ríkissjóðs frá samþykktum fjárlögum um u.þ.b. 90 milljarða. Segja má að hagkerfið hafi náð sér aftur eftir þær efnahagshremmingar sem fylgdu heimsfaraldri kórónuveirunnar og fá hagkerfi hafa vaxið hraðar út úr faraldrinum en það íslenska og það er vel. Hagvöxturinn í fyrra var um 6,4% en vorspá Hagstofunnar gerði ráð fyrir því að hagvöxtur á síðasta ári yrði um 4,6%. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var hagvöxtur 7% samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Eins og við vitum er það helsta sem drífur áfram hagvöxt á fyrsta ársfjórðungi þessa ár aukin einkaneysla, þjónustuútflutningur vegna ferðaþjónustunnar og hækkandi verðs á sjávarafurðum. Þá hefur fjárfestingarstig verið hærra en áætlað var, sér í lagi í atvinnuvegafjárfestingu, en áætlað er að fjárfestingar verði nokkuð umfangsmeiri á yfirstandandi ári og því næsta miðað við forsendur í fyrri fjármálaáætlun. Þá hefur mikil fólksfjölgun hér á landi á undanförnum árum aukin jákvæð áhrif á hagvöxtinn en í fyrra fjölgaði landsmönnum um rúmlega 3%. Fólksfjölgun á fyrsta ársfjórðungi gefur tilefni til að ætla að hún verði mun meiri en gert var ráð fyrir í mannfjöldaspá ársins í ár. Atvinnustig hér á landi hefur verið mjög hátt og atvinnuþátttaka sömuleiðis. Þróttmikið atvinnulíf kallar á margar vinnandi hendur sem mikilvægt er að halda þétt utan um samfara þróun atvinnulífs og fólksfjölgunar og stuðla að áframhaldandi háu atvinnustigi til að undirbyggja velferð landsmanna. Ég vík sérstaklega að þessum hluta í nefndarálitinu á eftir.

Virðulegi forseti. Það dylst engum að nú um mundir er verðbólgan helsta áskorun hagstjórnarinnar. Undanfarna mánuði hefur ársverðbólgan verið nálægt 10% og meginvextir Seðlabanka Íslands hafa hækkað verulega til að stemma stigu við verðbólgunni. Orsakir verðbólgunnar eru margar og á breiðum grunni og engar töfralausnir í sjónmáli. Samkvæmt spá Hagstofunnar verður verðbólga að meðaltali um 8,2% í ár en lækkar í 4,6% á næsta ári, enda koma áhrif vaxtahækkana ekki fram samstundis. Þá eru þættir í verðbólgunni sem eru innfluttir og innlendar vaxtahækkanir hafa lítil áhrif á. Ef verðbólgan nú er borin saman við maí í fyrra eru hækkanir mestar í innfluttum vörum, öðrum en eldsneyti. Því gætir áhrifa hækkandi heimsmarkaðsverðs á ýmsum nauðsynjum, t.d. mat og drykkjarvörum, hér sem annars staðar í Evrópu. Á sama tíma hefur heldur hægst á verðhækkunum á húsnæðismarkaði hér á landi og er það nú vel. Samkvæmt Seðlabanka Íslands eru langtímaverðbólguvæntingar enn mjög háar og eru vel yfir verðbólguviðmiði bankans, en verðbólguvæntingar hafa haldist háar í þó nokkurn tíma þrátt fyrir hækkandi vexti.

Eins og ávallt eru talsverð skekkjumörk í langtímahagspám og reyndar hafa þær einnig breyst hratt til skamms tíma. Mikill kraftur er í íslensku efnahagslífi um þessar mundir og eftirspurn með mesta móti. Á þessu ári er útlit fyrir áframhaldandi vöxt í ýmsum greinum, svo sem í ferðaþjónustunni og í fiskeldinu, auk þess sem er mikill fólksflutningur til landsins, eins og ég sagði áðan, sem eykur enn frekar eftirspurn.

Eitt af því sem er einn af veigameiri þáttum í aðgerðum gegn verðbólgu hjá ríkisstjórninni er að flýta gildistöku fjármálareglnanna sem teknar voru úr sambandi í heimsfaraldrinum. Sú ákvörðun kemur m.a. til vegna batnandi afkomu og skuldastöðu ríkissjóðs og er í takt við ábendingar fjármálaráðs, AGS og fleiri umsagnaraðila. Gangi nýleg þjóðhagsspá Seðlabankans eftir er útlit fyrir að frumjöfnuður ríkissjóðs verði jákvæður um nærri 44 milljarða í ár. Eins og ég sagði áðan er þetta um 90 milljarða betri afkoma en vænst var við samþykkt fjárlaga, og eru þó bara sex mánuðir síðan, og 20 milljörðum betri afkoma en gert var ráð fyrir þegar þessi áætlun kom fram í lok mars. Þannig skapast tækifæri til að ráðast fyrr en ella í niðurgreiðslu skulda. Þessi aðgerð mun stuðla að því að jafnvægi náist fyrr í ríkisfjármálum.

Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun byggir á árangursríku stjórnarsamstarfi sem staðið hefur frá árinu 2017. Á þeim tíma hafa útgjöld til helstu málaflokka velferðar- og menntamála verið stóraukin. Á sama tíma hefur verið ráðist í sókn á sviði nýsköpunar og rannsókna og í fjárfestingar í innviðum samfélagsins sem tryggja framtíðarhagvöxt og samkeppnishæfni íslenskrar þjóðar. Frá árinu 2017 og til loka áætlunarinnar hækka rammasett útgjöld í heildina um 381 milljarð sem er um 45% hækkun. Þessi hækkun endurspeglar áherslur ríkisstjórnarinnar frá upphafi samstarfsins þar sem framlög til heilbrigðisþjónustu, almannatrygginga og nýsköpunarmála hafa kerfisbundið verið aukin, auk þess sem stór fjárfestingarverkefni hafa verið fjármögnuð.

Á undanförnum árum hafa heilbrigðismálin og stóru tilfærslukerfi almannatrygginga tekið til sín stöðugt stærri hlut af heildarkökunni sem til skiptanna er í fjárlögum hverju sinni. Mesta hækkunin er til sjúkrahúsþjónustu, eða um 66 milljarðar, því næst 43 milljarðar vegna örorkulífeyrisþega og 36 milljarðar vegna málefna aldraðra. Þá hækka framlög til heilsugæslu og annarrar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa um 29 milljarða og 26 milljarðar fara til fjölskyldumála eins og barnabóta- og fæðingarorlofs. Þá hafa aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu, bæði síðastliðið sumar og nú í ár, snúist um að verja þessa málaflokka og þá auknu velferð sem skapast hefur með aukinni áherslu á þessa málaflokka.

Virðulegi forseti. Samkvæmt 13. gr. laga um opinber fjármál ber fjármálaráði að leggja fram mat og álitsgerð um fjármálaáætlun. Hlutlægt mat ráðsins á stefnumörkun og áætlanagerð opinberra fjármála er mikilvægt tæki fyrir aðhald og umfjöllun um stefnu stjórnvalda hverju sinni. Meiri hlutinn tekur undir margar helstu niðurstöður álits fjármálaráðs eins og oft áður, svo sem eins og að það sé brýnt að nýta tekjur umfram áætlanir til að stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum og þar af leiðandi stöðugu verðlagi en slík áform voru kynnt í verðbólguaðgerðum ríkisstjórnarinnar á mánudaginn.

Nokkrir umsagnaraðilar fjölluðu um útgjaldareglu til viðbótar við þær fjármálareglur sem eru til staðar í lögum um opinber fjármál. Með útgjaldareglu er sett þak á árlegan vöxt útgjalda hins opinbera. Það komu líka fram fyrir nefndinni þau sjónarmið að algengt væri að afkomuregla sé aðlöguð að langtímaþróun í hagsveiflunni. Þó hefur aðeins dregið úr því að hafa slíka aðlögun í afkomureglu þar sem erfitt hefur reynst að innleiða hagsveifluleiðrétta afkomureglu með öllum þeim óvissuþáttum sem því fylgir. Meiri hlutinn bendir á að mikilvægt er að draga sem mestan lærdóm af reynslu af fjármálareglum, bæði hér innan lands og erlendis, áður en teknar verða ákvarðanir um einhverjar breytingar. Við höfum rætt nokkuð um þessar fjármálareglur í nefndinni almennt af því að þær eru mikilvægt tæki til að byggja undir stöðugleika og festu í opinberum fjármálum. Fjármál hins opinbera eru almennt grundvölluð á hagrænum sjónarmiðum og stjórnmálastefnu og fjármálareglurnar veita hins vegar þar á móti skýrt tölulegt aðhald sem hægt er að mæla með hlutlausum hætti, sem er auðvitað mikilvægt atriði, t.d. til að við og fjármálaráð geti lagt hlutlægt mat á stefnu og áætlun stjórnvalda. Við teljum að halda verði í samþykkta fjármálastefnu og nýta, eins og ég sagði áðan, ófyrirséðan tekjuauka til að bæta afkomu í stað þess að auka útgjöld, líkt og fjármálaráð bendir á, enda styður slíkt við peningamálastjórnina þegar þörf er á því að ná niður verðbólgu. Þessar reglur, sem var vikið tímabundið til hliðar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, munu nú taka gildi að nýju árið 2025, af því það var eitthvað á reiki í fjölmiðlum, en ekki árið 2026, og það kemur til með að vega talsvert þungt þegar kemur að því að ná niður verðbólgu. Einnig hafa margir hér innan húss líka kallað eftir því, ekki bara AGS og fjármálaráð.

Meiri hlutinn telur jafnframt að auka verði festu í ríkisfjármálunum með því að bæta áætlanagerð og eftirlit með útgjöldum svo ekki verði stórkostleg frávik frá fjárlögum við gerð fjáraukalaga. Um þetta höfum við margoft rætt í fjárlaganefnd og erum held ég nokkuð einhuga um það. Fjármálaráð benti líka á að það ætti að forðast hallarekstur hins opinbera á meðan mikil þensla er í hagkerfinu svo rými verði til þess að bregðast kröftuglega við ef samdráttur verður í hagkerfinu og tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið.

Virðulegi forseti. Í nefndarálitinu fjallar meiri hlutinn sérstaklega um nokkur þeirra málefnasviða sem undir eru í áætluninni og um stöðu efnahagsmála og húsnæðismála og fer ég betur yfir það hér á eftir. Í nefndarálitinu er einnig vakin athygli á því að áætlunin gerir ráð fyrir fjölmörgum ráðstöfunum á tekjuhlið sem enn eru ólögfest og nema þær samtals rúmum 18 milljörðum kr. Þar munar einna mest um skattlagningu vegna ökutækja og eldsneytis en unnið er að heildstæðri endurskoðun á tekjuöflun ríkisins af farartækjum og umferð á vettvangi sameiginlegrar verkefnisstofu innviðaráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins og mjög brýnt að ráðuneytið ljúki þeirri vinnu sem allra fyrst og fyrir fjárlagagerð komandi árs.

Eins og ég sagði verður fiskeldisgjaldið hækkað á árinu 2025 auk þess sem gert er ráð fyrir að endurskoðun veiðigjalds muni skila viðbótartekjum á tímabili áætlunarinnar. Lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis lækkar í 35% og er áætlað að það skili um 6 milljörðum kr. Þá er boðuð aukin gjaldtaka í ferðaþjónustu upp á tæpa 3 milljarða sem og varaflugvallargjald upp á tæpan 1,6 milljarða. Enn fremur verður tekjuskattur lögaðila tímabundið hækkaður um 1% í eitt ár árið 2025 vegna tekna ársins 2024.

Í greinargerð með þingsályktuninni kemur fram að almenn aðhaldskrafa verði tvöfölduð, úr 1% í 2%, utan þess að aðhaldskrafa á skóla verður 0,5%, sem er lægra en annað aðhald. Sérstakt viðbótarprósent verður svo lagt á Stjórnarráðið sem sýnir gott fordæmi eins og ég benti á áðan.

Meiri hlutinn vill vekja athygli á því að aukin stafræn þróun er lykilþáttur í því skyni að ná fram skilvirkari og hagkvæmari ríkisrekstri. Mikið hefur áunnist í þeim málum á síðastliðnum árum og Ísland er núna í fimmta sæti í Evrópu í hagnýtingu þjónustugáttar þar sem íbúar geta fengið afgreiðslu í gegnum vefsíðu stofnana á island.is. Meiri hlutinn hvetur til þess að enn frekari áhersla verði lögð á að auka enn hraðar stafræna þjónustu sem kemur öllum landsmönnum til góða, eykur þjónustu en ætti um leið að geta dregið úr kostnaði við rekstur stofnana.

Ég vil líka halda því til haga að heilbrigðis- og öldrunarstofnanir, auk almanna- og sjúkratrygginga og fangelsa eru undanskilin aðhaldi út áætlunartímabilið og lögregluembættin á árunum 2024–2025. Meiri hlutinn telur, eftir samtöl í nefndinni með fulltrúum aðila, ástæðu til að skoða hvort lögreglan ætti ekki að vera undanskilin aðhaldi áfram þar sem stærsti hluti þeirra útgjalda er launakostnaður.

Umsagnaraðilar voru ekki á einu máli um þá aðhaldskröfu sem kemur fram í áætluninni, ýmist að þeir töldu hana of mikla eða of litla eða ætti að dreifast með öðrum hætti en fram kemur. Það sem við í meiri hlutanum viljum gera er að beina því til ráðherranna að hugmyndin á bak við veltutengt aðhald er ekki að nota það til að lækka útgjaldasvigrúm heldur til þess að endurskipuleggja og forgangsraða með nýjum hætti. Aðhaldskrafan er ekki hámark eða lágmark og það þarf að nýta aðhaldið til að endurspegla stöðu efnahagsmála hverju sinni og nota tækifærið til að endurmeta útgjöldin í heild sinni. Við getum alls staðar og alltaf gert betur.

Þá eru það málefni örorkulífeyrisþega. Fyrir nefndinni komu fram ábendingar um fjölgun örorkulífeyrisþega umfram aukinn mannfjölda. Til að bregðast við því hefur m.a. verið aukin áhersla á endurhæfingu og greiðsluþátttaka í sjúkraþjálfun verið stóraukin og hafa komið fram vísbendingar um að þessi stefna sé að skila árangri. Þó að það snerti ekki með beinum hætti fjármálaáætlun þá vil ég minnast á það hér að til að bregðast við því efnahagsástandi sem nú ríkir hefur verið ákveðið að hækka bætur almannatrygginga núna á þessu ári um 2,5% til viðbótar tæpum 8% sem tóku gildi fyrir tæpum sex mánuðum síðan. Til að húsnæðisbætur skerðist ekki á móti er frítekjumark þeirra jafnframt hækkað um 2,5% afturvirkt frá áramótum. Er þetta til umfjöllunar nú í þinginu. Áhrif þessara hækkana á fjárhæðir fjármálaáætlunar rúmast innan verðlagsuppfærslu áætlunarinnar á næsta ári.

Málefni fatlaðs fólks voru sömuleiðis til umfjöllunar í fjárlaganefnd, einu sinni sem oftar. Fjölmargir umsagnaraðilar bentu á að útgjöld sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks dugi ekki til að standa straum af lögbundinni þjónustu við hópinn, þrátt fyrir að framlög ríkissjóðs í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafi verið aukin.

Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að bregðast við þessari þróun og það er mikilvægt að ríkið og sveitarfélögin fari að ná samkomulagi um þennan mikilvægan málaflokk. Meiri hlutinn vill líka benda á að mikilvægt er að tryggja valfrelsi fatlaðs fólks eins og annarra til búsetu og þess vegna þarf að byggja upp fjölbreytt búsetuúrræði. Tilhneigingin hefur verið í gegnum árin að velja helst aðeins eitthvert eitt form.

Málefni aldraðra og hækkandi lífaldur voru einnig rædd. Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Í ljósi þess að eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr aukast greiðslur úr lífeyrissjóðum til lengri tíma. Lífaldur og ávöxtun eigna eru þeir þættir sem jafnan hafa mest áhrif á stöðu lífeyrissjóðanna. Vanmat á lífslíkum jafngildir vanmati á skuldbindingum. Þá hefur ofmat á ávöxtun sömu áhrif til lengri tíma. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að bregðast við þessari þróun. Í umræðunni hafa verið ýmsar aðgerðir, svo sem hækkun lífeyristökualdurs í áföngum og breytingar á reglum um hámarksaldur opinberra starfsmanna til þess að gera þeim sem geta og vilja vinna lengur kleift að vinna áfram. Þá er verkefnið Gott að eldast lykilplagg í breyttri nálgun stjórnvalda í málaflokknum. Þar taka stjórnvöld utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti því að grunnhugsunin á auðvitað alltaf að vera sú að eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Húsnæðismálin hafa verið í brennidepli undanfarin ár. Til skamms tíma hafa nokkrir þættir haft mikil áhrif á markaðinn eins og hér hefur ítrekað verið rætt. Hér naut fólk góðra vaxtakjara á lágvaxtaskeiðinu undanfarin ár. Þau kjör sköpuðust vegna farsællar hagstjórnar ríkisstjórnarinnar í heimsfaraldrinum og ýttu undir fjárfestingu á tíma þar sem hennar var þörf. Að sama skapi hefur hækkun vaxta nú áhrif til minnkandi eftirspurnar ásamt aukinni greiðslubyrði á herðar lántakenda og vill nefndin árétta mikilvægi þess að fylgjast grannt með þróun mála. Þá hefur gríðarleg fólksfjölgun drifið áfram eftirspurn og þörf fyrir húsnæði, t.d. vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd, vinnuafls í ferðaþjónustu og iðnaði. Þá ýtir hátt lóðaverð og lóðaskortur undir byggingarkostnað. Sömuleiðis má benda á þann hluta íbúðauppbyggingar sem lýtur að hönnun húsnæðis og varðar bílakjallara og margt fleira sem eykur byggingarkostnað og lengir byggingartíma. Það er alveg vert að skoða hvort lækka megi byggingarkostnað með einföldun á þar að lútandi regluverki án þess að slá af nauðsynlegum öryggiskröfum og kröfum um algilda hönnun.

Til langs tíma er unnið að margvíslegum aðgerðum sem miða að því að auka framboð á húsnæði til að auka húsnæðisöryggi í samræmi við ríkisstjórnarsáttmálann. Í því sambandi er mikilvægt að ríkið stígi inn af festu, eins og boðað hefur verið, til að bæta húsnæðisöryggi fyrir fólk sem er undir tilgreindum tekju- og eignamörkum.

Unnið er að kortlagningu í húsnæðismálum en á síðasta ári var undirritaður rammasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga þar sem ríki og sveitarfélög náðu í fyrsta sinn í sögu húsnæðismála á Íslandi samkomulagi um sameiginlega framtíðarsýn með það að markmiði að auka framboð nýrra íbúða til að mæta fyrirsjáanlegri og uppsafnaðri íbúðaþörf næstu tíu árin. Rammasamningnum var auk þess ætlað að leggja grunn að beinu samningssambandi milli ríkis og einstakra sveitarfélaga með það að markmiði að tryggja lóðaframboð ásamt því að veita nauðsynlegan fjárstuðning til íbúðauppbyggingar.

Á næstu árum er útlit fyrir heldur hægari fjölgun íbúða, en spá HMS gerir ráð fyrir að innan við 3.000 íbúðir verði fullbúnar á þessu ári. Sveitarfélög og ríki geta bæði stuðlað að hagkvæmari og fjölbreyttari lausnum í húsnæðismálum, eins og ég sagði áðan, með því að einfalda regluverk og liðka til fyrir uppbyggingu.

Hlutfall ungs fólks á aldrinum 18–24 ára sem býr í foreldrahúsum var 55% árið 2021 og er enn sem komið er miklu lægra á Íslandi heldur en í ríkjum Evrópusambandsins þar sem það er nálægt 80%. Líklegt er þó að þetta hlutfall fari mjög vaxandi hérlendis með sama áframhaldi ef ekki er staðið rétt að málunum. Í þessu samhengi má benda á að stórauka á framboð af húsnæði fyrir tekju- og eignaminni fjölskyldur og einstaklinga með því að auka framlög til hlutdeildarlána. Þá verða stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins tvöfölduð. Þetta er partur af þeim aðgerðum sem kynntar voru á mánudaginn og verður vonandi til þess að við verðum ekki á sama stað með nokkurra ára millibili þar sem skorturinn eykst og verðið hækkar. Þannig er stefnt að því að um 1.000 íbúðir verði byggðar árlega árin 2024 og 2025 í stað 500 íbúða.

Virðulegi forseti. Málefni útlendinga og fólksfjölgun skipta líka máli þegar við ræðum húsnæðismálin. Eins og áður segir eru ótalin áhrif fólksfjölgunar á húsnæðismarkaðinn, en fjöldi fólks sem hingað kemur eru umsækjendur um alþjóðlega vernd og vinnuafl í ferðaþjónustu og iðnaði. Um helmingur flóttafólks hér á landi kemur, eins og við þekkjum, vegna stríðsins í Úkraínu. Á undanförnum árum hefur fjöldi umsókna frá Venesúela aukist umtalsvert og á síðustu mánuðum hafa fleiri Venesúelabúar sótt um alþjóðlega vernd en frá Úkraínu. Ber að geta þess í því samhengi hversu jákvætt það er að atvinnuþátttaka fólks sem hingað leitar til okkar er mjög há og hún er hærri en Íslendinga á árunum 2018-2022. Heilt yfir hefur atvinnuþátttaka útlendinga verið mjög góð hér á landi og mikilvægt að standa vörð um það og tryggja að fólki af erlendum uppruna standi til boða störf í samræmi við menntun sína og reynslu þannig að samfélagið njóti góðs af.

Gert er ráð fyrir því að nýjar reglur um atvinnuleyfi útlendinga, sem nú bíða samþykktar Alþingis auki möguleika fólks utan EES-svæðisins á að koma til landsins, starfa hér og taka þátt í íslensku samfélagi. Vonandi léttir það líka á kerfinu okkar í það heila. Kallað hefur verið eftir rýmkun atvinnuleyfa, ekki síst hjá nýsköpunarfyrirtækjum. Um leið og við erum að taka á móti fjölda fólks þurfum við líka að ráðast í markvissar aðgerðir í samstarfi við sveitarfélögin varðandi móttöku erlendra ríkisborgara í skólum.

Virðulegi forseti. Tíminn styttist. Hér í nefndarálitinu er líka að finna sérstakan kafla um íbúaþróun og framleiðni þar sem fram kemur að íbúum á Íslandi fjölgaði um 11.510 frá 1. janúar 2022 og fram til ársbyrjunar í ár, eða um 3,1%, sem er mesta fólksfjölgun á einu ári eins langt og tölur Hagstofunnar ná. Til gamans má segja það að þær ná aftur til ársins 1735. Fæddir umfram dána skýra aðeins 15% af fjölgun ársins 2022 og er meginþorri fjölgunarinnar vegna aðfluttra umfram brottflutta og fjölgaði erlendum ríkisborgurum vegna flutninga til og frá landinu um ríflega 10.000, þar af rúmlega 8.000 á aldrinum 20–65 ára á síðasta ári. Ef litið er á hvernig þróun erlendra ríkisborgara var í helstu atvinnugreinum kemur í ljós að störfum þeirra fjölgaði mest í ferðaþjónustu og í atvinnugreinum iðnaðarins, þar af 1.200 í byggingariðnaði, sem helst í hendur við mikla atvinnuþátttöku eins og ég sagði hér áðan.

Hraður viðsnúningur hefur átt sér stað hjá ferðaþjónustunni. Eftir heimsfaraldur hefur meðalfjöldi gistinátta og kortavelta erlendra ferðamanna aukist samanborið við árin 2018 og 2019. Þá er komum erlendra ferðamanna að fjölga og nálgast fjöldinn óðfluga metárið 2018. Ferðaþjónustan er ein af stærstu útflutningsgreinum landsins og mikilvægur drifkraftur hagvaxtar.

Við þurfum áfram að leggja áherslu á öflun áreiðanlegra gagna og innviðauppbyggingu ásamt aðgerðum sem miða að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið og yfir allt árið. Þá er mikilvægt að auka öryggi og stuðla að öruggri ferðahegðun ferðamanna. Sömuleiðis þarf að leita leiða til að bæta rekstrarskilyrði greinarinnar hér á landi. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni efnahagslegs og samfélagslegs jafnvægis. Í því felst að ferðaþjónustan sé arðsöm og samkeppnishæf í sátt við náttúru, íslenska menningu, tungu og samfélag.

Eins og fram hefur komið hefur heimagisting mikil áhrif á húsnæðis- og leigumarkað hér á landi. Það er því mikið fagnaðarefni að gera eigi breytingar á lagaumhverfi heimagistingar og draga úr þrýstingi á húsnæðismarkað eins og áformað er. Þá er gjaldtaka vegna skemmtiferðaskipa mikilvægur þáttur í aukinni tekjuöflun ríkissjóðs en líka til þess að jafna samkeppnisstöðu á gistimarkaði. Til viðbótar við þessar aðgerðir telur meiri hlutinn gagnlegt að ráðist verði í greiningu á tekjum ríkisins af mismunandi tegundum ferðamanna, eftir ferðamáta til og frá landinu, ferðamáta innan lands og vali á gistingu.

Að endingu, í þessu samhengi, vil ég minna á mikilvægi þess að koma aftur á varaflugvallargjaldi vegna flugvallanna á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík, ekki síst vegna öryggis þeirra en líka til að dreifa ferðamönnum.

Virðulegi forseti. Vegagerðin hefur reiknað út virði vegakerfisins að undanförnu ásamt línulegum afskrift¬um. Vegakerfið er einhver stærsta eign íslenska ríkisins og nauðsynlegt viðhald þess varðveitir þessa eign. Þetta verðmat samgöngumannvirkja hefur enn fremur verið fært til bókar í efnahagsreikningi ríkisreiknings. Þannig koma nýfjárfestingar og viðhald á móti afskriftum og viðhalda virði þessarar verðmætu eignar landsmanna. Árleg viðhaldsþörf miðað við eðlilegt ástand er varlega metin á 15,5 milljarða kr. Uppsöfnuð viðhaldsskuld er í dag metin á um 80 milljarða kr.

Eitt meginverkefni gildandi fjármálaáætlunar er að draga úr þenslu í þjóðfélaginu og þar með halda aftur af ríkisútgjöldum. Mikilvægt er að næsta samgönguáætlun endurspegli það og auki ekki þenslu um leið og gætt er að öryggi vegakerfisins. Þegar hægist á efnahagslífinu er þjóðhagslega hagkvæmt að ráðast í innviðaframkvæmdir, svo sem samgönguframkvæmdir. Í því samhengi er mikilvægt að undirbúningur þeirra sé sem lengst kominn svo hægt sé að hefjast handa þegar ytri skilyrði eru sem hagkvæmust.

Þá er vert að minnast á að unnið er að endurskoðun á aðkomu ríkisins að almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við samkomulag um vilja til slíks milli ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Ég vil hér að endingu minnast á sérstaka aðgerðaáætlun í kornrækt en mikilvægi hennar hefur aukist í takti við aukið vægi fæðuöryggis síðustu misseri og er það í samræmi við markmið sem fram koma í stjórnarsáttmálanum. Meginmarkmiðið er að styðja við sjálfbærni matvælaframleiðslu Íslands og fæðuöryggi.

Á þeim tíma sem við vorum með fjármálaáætlun til umfjöllunar í nefndinni kynnti matvælaráðherra tillögu um breytta nálgun í baráttunni við riðuveiki sem við höfum fjallað um hér í þinginu og samþykkt var í ríkisstjórn. Sú nálgun mun draga úr kostnaði ríkisins til lengri tíma með hratt lækkandi líkum á kostnaðarsömum niðurskurðaraðgerðum og bótum þeim tengdum.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin er með háleit markmið í loftslagsmálum. Stjórnvöld hafa undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar um samdrátt í losun og aukna bindingu kolefnis. Orkuskipti er ein áhrifaríkasta aðgerðin í þeim málum og mikilvægt að hraða þeim eins og kostur er. Til að auka svigrúm til að árangursstýra framlagi ríkissjóðs til orkuskipta hefur stuðningur við orkuskipti verið fluttur frá tekjuhlið yfir á gjaldahlið. Góður árangur í orkuskiptum getur dregið úr útgjöldum ríkissjóðs og einnig haft jákvæð áhrif á erlendan viðskiptajöfnuð vegna minni innflutnings á eldsneyti og aukinnar orkuframleiðslu innan lands.

Virðulegi forseti. Auknar skatttekjur í ár munu fyrst og fremst stafa af verðbólgu og efnahagsspennu, sem samkvæmt samþykktri fjármálastefnu á að meginstofni til að nýta til að bæta afkomuna og til lækkunar opinberra skulda og það hlýtur að teljast mikið gleðiefni enda er eitt af því mikilvægasta fyrir komandi kynslóðir að skuldir ríkissjóðs sé ekki miklar. Þessar auknu tekjur breyta hvorki mati á undirliggjandi stöðu opinberra fjármála né aðhaldsstigi þeirra frá því sem er í fjármálaáætlun. Meiri vöxtur landsframleiðslunnar í ár leiðir til þess að nafnvirði hennar er hærra út tímabil áætlunarinnar. Leiðir það til lægra skuldahlutfalls og enn betri afkomu í ár en áður var spáð sem er gróflega metin á um 20 milljarða kr. Miðað við fjárlög ársins er þá samtals verið að spá mun betri afkomu eins og ég hef áður vikið að. Áhrif þess á afkomu ríkissjóðs og hins opinbera fyrir tímabil sjálfrar fjármálaáætlunar þ.e. 2024–2028 eru á hinn bóginn óveruleg. Að öðru leyti eru ekki vísbendingar um verulega breytta efnahagsframvindu á tímabili fjármálaáætlunar frá því sem áður var við framlagningu hennar

Með hliðsjón af betri stöðu ríkisfjármála en áætlað var leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt en að gildistöku tölusettrar fjármálareglna verði flýtt, eins og ég vék að áðan, um eitt ár frá því sem fyrirhugað var, þannig að þær taki gildi frá og með árinu 2025.

Undir nefndarálitið skrifa, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Bryndís Haraldsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Þórarinn Ingi Pétursson og Stefán Vagn Stefánsson.