fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Það er auðvitað ofboðslega margt undir í þessari fjármálaáætlun en hér í andsvari ætla ég að halda mig við stöðu mála hvað varðar verðbólgu og ofboðslega hátt vaxtastig. Hér á mánudaginn voru kynntar sérstakar tillögur ríkisstjórnarinnar, varnarviðbrögð gegn verðbólgu. Ég vil beina spurningu til hv. formanns fjárlaganefndar af því að hér var lagður á borð aðgerðapakki af þeirra hálfu. Uppistaðan í honum sýnist mér vera gamalt efni kynnt sem nýtt en það breytir því ekki að tillögur voru lagðar fram. Hver eru markmið þeirra? Hvernig heldur formaður fjárlaganefndar að markaðurinn muni bregðast við í kjölfarið? Hver voru markmið meiri hlutans um áhrif þessara tillagna mánudagsins á verðbólgu? Ég held að stórt svar við því muni liggja fyrir í næstu stýrivaxtaákvörðun í ágústmánuði. En býst formaður fjárlaganefndar við því að við munum sjá breytingar á vaxtastigi í næstu stýrivaxtaákvörðun í framhaldi af þessum tillögum meiri hlutans?