Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að við séum öll að vonast til þess að aðgerðir sem kynntar voru hér á mánudaginn og aðrar sem framkvæmdar voru um síðustu áramót, sem virkuðu að sjálfsögðu inn á þetta ár, komi til með að hjálpa okkur í því verkefni sem fram undan er, þ.e. að ná niður verðbólgunni. Ég hef í sjálfu sér ekki heyrt neinn segja að þær geri það ekki. Fyrirsagnirnar hjá stjórnarandstöðunni hafa fyrst og fremst verið að þetta sé gamalt efni og endurnýtt. Um það erum við ekki alfarið sammála. Ég hef trú á því að markaðurinn taki við sér þegar við erum að tala um að flýta fjármálareglunum, að það skipti gríðarlega miklu máli að við séum að sýna fram á það að við náum hraðar utan um ríkisfjármálin. Hv. þingmaður hefur nú verið ein af þeim sem hefur kallað eftir slíku og það hlýtur að vera vegna þess að hún hefur sömu trú og ég á því að það sé eitt af því sem virkar.

Ég held líka að það að setja hér inn á markaðinn aukinn stuðning við húsnæðismálin komi til með að hjálpa til þannig að við lendum ekki aftur í þenslu að tveimur árum liðnum eða svo, að húsnæði verði aftur orðið svo dýrt að enginn eða fáir geti keypt. Það tel ég vera skynsamlega aðgerð sem komi til með að hjálpa verulega til núna í þessari baráttu sem og svo margar aðrar aðgerðir og auðvitað aðgerðir til stuðnings fólki þar sem við erum a.m.k. ekki að rýra tekjur þess heldur erum við að reyna að bæta við stuðninginn og halda vel utan um það. Ég held að allt þetta hjálpi til og vonast að sjálfsögðu til þess, eins og ég veit að hv. þingmaður gerir líka, að stýrivextir lækki en hækki ekki.