Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:51]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skil svör hv. formanns fjárlaganefndar þannig að hún treysti sér ekki til að lýsa því yfir að það hafi verið skýrt markmið að ná fram tilteknum árangri um lækkun verðbólgu í kjölfar þessara aðgerða og hún treysti sér heldur ekki til að lýsa því yfir að það hafi verið markmið ríkisstjórnarinnar sem þau búist við að gangi eftir, að það verði breyting á vaxtastigi við næstu ákvörðun stýrivaxta Seðlabankans. Það eru tíðindi. Ég held reyndar að þegar markmiðin eru ekki skýr, þegar fólk getur ekki sagt það skýrt upphátt hver markmiðin eru þá eru þau alltaf, því miður, ólíkleg til að ganga eftir. Ég myndi vilja fá skýrt svar frá formanninum: Býst hún við því að þessar tillögur meiri hlutans núna verði til þess að stýrivextir fari niður í næstu ákvörðun?

Næsta spurning var talið um hagvöxtinn. Hagvöxtur á Íslandi er mikill í ákveðnu samhengi þegar hálf sagan er sögð. Staðreyndin er hins vegar sú að þegar við skoðum hagvöxt með tilliti til fólksfjölgunar hér á Íslandi, þegar við skoðum hagvöxtinn með tilliti til þess hvað hann er að breytast hratt, þegar við sjáum að hagvöxturinn er borinn uppi af því að fólki fjölgar hér á landi, þá erum við með lægsta hagvöxt allra OECD-ríkja. Ætti að miða útgjaldaáætlanir í meira mæli við þá þróun sem við erum að sjá á framleiðni og þessar breytingar á hagvexti? Getur verið að verðbólguþrýstingur ríkissjóðs stafi af því að áætlanir um útgjöld miða við forsendur sem eru óskaplega hæpnar, miða við forsendur um hagvöxt sem er, þegar betur er að gáð, annar en haldið er fram?