Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:55]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Staðan er þannig að úti um allan heim eru þjóðir að leita leiða til að laða að heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólk til starfa og reyna að sjá til þess að það vilji starfa áfram innan heilbrigðiskerfisins og félagslega kerfisins. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Evrópusambandið hafa sett fram tillögur og viðmið í þessum efnum og þau vara sérstaklega við því að þetta ástand, sem er ekki bara hér á landi heldur víða annars staðar, verði ekki nýtt og ekki svarað með auknum einkarekstri í heilbrigðisþjónustu í gróðaskyni.

Það er áhyggjuefni, frú forseti, að í fjármálaáætluninni fyrir árið 2024–2028 er talað um mönnunarvandann sem áskorun, en það eru allt of fáar raunhæfar fjármagna leiðir lagðar fram til úrbóta. Það væri hægt að gera svo margt fyrir aukið fjármagn, svo sem að laða starfsmenn og halda hinum sem fyrir eru með betri kjörum, kaupa nýrri og betri tæki og fjölga nemaplássum, svo eitthvað sé nefnt, auk þess að fara eftir þeim viðmiðum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Evrópusambandið hafa lagt fram. Það eru nefnilega allir sammála um að mönnunarvandinn muni vinda upp á sig og verða ein helsta ógn við heilbrigði þjóða ef ekkert verður að gert.

Ég vil því spyrja hv. þingmann, formann fjárlaganefndar, hvort hún taki ekki undir það með mér að vandinn verði ekki leystur nema með hærri fjármunum en gert er ráð fyrir í fjármálaáætluninni til næstu fjögurra ára. Á þessu hanga líka áætlanir í geðheilbrigðismálum og þjónustu við eldra fólk, sem nýlega er búið að samþykkja. Telur hv. þingmaður að lausn á vanda heilbrigðiskerfisins sé fólgin í því að setja heilsugæslur í einkarekstur, líkt og nýlega hefur verið tekin ákvörðun um fyrir heilsugæsluna á Suðurnesjum? Megum við eiga von á meira af því sama frá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur?