fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og hún kom svo vel inn á þá er þetta heimsvandi sem við glímum við, þ.e. mönnun í heilbrigðiskerfinu. Við þekkjum það frá bara löndunum sem við höfum nú gjarnan borið okkur saman við og hafa verið Mekka góðs heilbrigðiskerfis, eins og t.d. Svíþjóð, þar sem því miður er orðinn, að mínu mati, allt of mikill einkarekstur.
Ég tek undir það með hv. þingmanni að ég hef talað fyrir auknum ríkisrekstri í heilbrigðismálum. Það hefur engum dulist það og ég kem til með að gera það áfram. Ég hef hins vegar ekki talað gegn því frekar en margir aðrir hér í þessum sal að blandaður rekstur er góður. Að sama skapi, af því að við höfum nú heyrt hv. þingmann líka nefna t.d. að það þurfi að semja við sérgreinalækna því að það bitni illa á þeim sem þurfa að sækja þjónustu: Hvað á að vera þar undir? Á það að vera undir sem þau vilja gera, þ.e. það sem þau telja að þurfi að gera, eða á það að vera það sem ríkið leggur til að þurfi að kaupa? Allt þetta þarf að vega og meta á hverjum tíma og ég tel að eins og áætlunin er lögð fyrir núna þá eigi hún að duga fyrir því sem við þurfum að takast á við hér. Við endurskoðum áætlunina árlega og ef þörfin reynist verða meiri en hér er lagt af stað með þá tökumst við á við það eins og við gerum ævinlega. Það er ekkert nýtt undir sólinni í því. Ég tel að við höfum verið að gera gríðarlega vel innan heilbrigðisþjónustunnar. Við höfum verið að reyna að færa til þjónustuna inn á fyrsta stigið, inn á heilsugæslurnar, sem ég held að sé gott. Allir eru að skoða sínar stofnanir, hvar þeir geta gert betur, hvernig þeir geta nýtt hið mikilvæga starfsfólk sitt betur. Ég held að þetta hjálpi allt saman til við að takast á við þennan vanda. En því er ekki að leyna að við búum ekki til fólk. Jafnvel þótt aðstæður séu góðar og við gerum vel í því bæði inni á spítölum og heilsugæslum þá búum við ekki til fólk til þess að sinna þessu, ekki frekar en aðrar þjóðir.