153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:00]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Jafnvel þó að það sé mönnunarvandi einhvers staðar annars staðar í heiminum, sem sannarlega er, þá fríar það okkur ekki hér á Íslandi. Við þurfum að gera það sem við getum til að halda okkar starfsfólki í starfi og laða þau til okkar sem hafa yfirgefið heilbrigðisstofnanirnar, sem við þekkjum. Hv. þingmaður nefndi sérgreinalæknana. Það er ljóst að samningar við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara hafa verið lausir í fjögur og hálft ár — fjögur og hálft ár — og á meðan er það langveikt fólk sem þarf að bera þyngstu byrðarnar og þarf að borga yfir borðið á læknastofum og hjá sjúkraþjálfaranum umtalsverðar upphæðir til að fá læknisþjónustu sem það hefur þörf fyrir. Ríkið veit ekki hvað það vill semja um við sérgreinalæknana. Ég er búin að fara og heimsækja allar þessar stofnanir og tala við lækna og hringja á læknastöðvar og það er bara þannig; það liggur ekki fyrir þarfagreining og það liggur ekki fyrir kröfulýsing, þannig að ríkið veit ekki hvað á að semja um og þá er ekki nema von að illa gangi.

Nýleg könnun sýnir sláandi niðurstöður um að umtalsverður hópur einstaklinga frestar læknisheimsóknum og sækir ekki lyf sem þeim er ávísað. Þetta á ekki síst við um öryrkja, lágtekjufólk og einstæða foreldra. Það kemur fram í þessari könnun að 43% öryrkja 18 ára og eldri hafa frestað læknisþjónustu sem þörf er á á síðustu sex mánuðum og 22,1% af öðrum fullorðnum. Við vitum það alveg að það að fresta nauðsynlegri læknisþjónustu mun hafa fjárhagsleg áhrif á einstaklinginn en það mun líka hafa fjárhagsleg áhrif á samfélagið þegar vandinn safnast upp og verður mun dýrari í öllum skilningi. Þannig að það væri árangursrík (Forseti hringir.) fjárhagsleg aðgerð fyrir samfélagið að leggja aukið fé og þó að það væri ekki nema til Sjúkratrygginga Íslands svo að sú stofnun hafi fjármagn (Forseti hringir.) til að gera það sem henni ber að gera samkvæmt lögum. En svo er ekki nú, eins og kom svo vel í ljós (Forseti hringir.) þegar forstöðumaðurinn sagði upp störfum sínum á dögunum einmitt vegna þessa.