fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég vil halda því til haga hér enn einu sinni og það veit hv. þingmaður, að það er ákveðinn hópur sem glímir við erfiðleika í okkar samfélagi. Við erum að reyna að ná utan um hann með sem bestum hætti; einmitt einstæða foreldra, með því að hækka barnabætur, með því að hækka húsnæðisstuðning, með því að auka niðurgreiðslur vegna lyfja og læknisheimsókna o.s.frv. Allt hefur þetta aukist í tíð þessarar ríkisstjórnar. Mér finnst að við verðum að halda því til haga af því að það er gjarnan látið eins og lítið eða ekkert hafi verið gert. Það þarf örugglega að gera betur víða og engu verkefni lýkur í sjálfu sér þegar kemur að þessum málum.
Það er a.m.k. alveg nýtt fyrir mér að heyra að það liggi ekki fyrir þarfa- eða kröfugreining, það eru aðrar upplýsingar en við höfum fengið inni í fjárlaganefnd. Það get ég bara sagt hér og nú og veit það meira að segja að í tíð síðasta heilbrigðisráðherra var komin fram ákveðin þarfagreining (OH: … af þrjátíu … ) þar sem þeir sem átti að semja við voru bara ekki sammála þeirri nálgun. Það þarf líka að vera þannig að þeir sem er verið að semja við séu tilbúnir — að það sé ekki alveg þeirra ráða för, þ.e. læknanna, heldur sé það fyrst og fremst ríkið sem eigi í rauninni að ákveða hver þörfin er og hversu mikið á að gera.
Ég er sammála hv. þingmanni, það er alvarlegt þegar fólk frestar læknisheimsókn af því að það er sannarlega rétt að það færist yfir á samfélagið með einhverjum öðrum hætti áður en yfir lýkur ef ekki er neitt að gert. Eins og ég sagði áðan, utan um þennan hóp höfum við verið að reyna að taka og við munum gera það hér eftir sem hingað til.