Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:05]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það sem mér finnst áhugavert við þessa umræðu um fjármálaáætlun er að hér voru boðaðar í byrjun vikunnar með miklum lúðraþyt efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Það voru skattahækkanir og það voru aðgerðir til sparnaðar. En síðan birtist bara óbreytt plagg, frú forseti, algjörlega óbreytt. Það er leitt að segja það hér úr þessum ræðustól að það hefur verið ástunduð ákveðin upplýsingaóreiða af hæstv. forsætisráðherra í tengslum við þessa áætlun og það er ekki til þess að vekja traust. Það er það alls ekki. Það mun miklu frekar valda vantrausti á það plagg sem hér er verið að leggja fram til margra ára að menn ástundi hér upplýsingaóreiðu. Ég verð að segja að þetta fals kemur frá þeim sem síst skyldi. En hvað sem því líður þá höfum við í Flokki fólksins lagt fram nokkrar breytingartillögur til að gera þessa áætlun betri og þess vegna væri fróðlegt að fá hér fram hvort hv. þm. Vinstri grænna treysti sér að gera þessa áætlun betri með okkur í Flokki fólksins. Það er m.a. gert með því að hækka bankaskattinn og færa í fyrra horf þannig að það verði meira til skiptanna og að þeir sem standi höllum fæti verði ekki látnir bíða eins og þessi áætlun gerir ráð fyrir. Það eitt myndi gera þessa áætlun betri og veita þá ríkisstjórninni (Forseti hringir.) svigrúm og andrými til að gera betur við þá sem standa höllum fæti í samfélaginu.