Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil byrja á því að mótmæla því að hér sé verið að beita einhvers konar blekkingum. Það er svo sannarlega ekki. Því hefur algjörlega verið haldið til haga og hægt að fletta því upp, hvort sem það er í fjölmiðlum eða hér í svörum ráðamanna á Alþingi, að þetta hefur alveg legið kristaltært fyrir hvaða aðgerðir er hér verið að boða, annars vegar það sem fellur inn á þetta ár, og fólk virðist líka rugla dálítið saman, og gegnir því hlutverki að slá m.a. á verðbólguna sem allra fyrst. Í annan stað þá erum við hér með mikilvæga aðgerð varðandi fjármálareglurnar. Ég veit ekki hvort hv. þingmenn gera sér grein fyrir því að það skiptir máli að færa fjármálareglurnar fram um eitt ár. Það sýnir að við trúum á hagkerfið, við trúum á að hið íslenska efnahagslíf skili okkur áframhaldandi betri afkomu sem gerir okkur kleift að ná miklu fyrr utan um hallarekstur ríkissjóðs. Ég veit ekki hvort hv. þingmenn átta sig alveg á þessu. Ég er nokkuð viss um að hv. þingmaður getur ekki verið ósammála mér um að það sé nýtt. Síðan var hér kynnt tvöföldun í uppbyggingu húsnæðis, bæði í hlutdeildarlánum og stofnframlögum. Það held ég að hv. þingmaður verði líka að taka undir að skiptir máli fyrir mjög marga hópa og ekki síst þá sem hans flokkur talar dálítið fyrir, þ.e. fólk sem er á leigumarkaði og þarf á húsnæði að halda. Svo verð ég bara að halda því til haga að það er auðvitað ósanngjarnt að halda því fram að þær bætur og annað slíkt sem hækkaði um áramótin og er svo aftur að hækka að hluta til núna um mitt sumar, skipti ekki máli. Það er bara eins og ekkert hafi verið gert. Auðvitað er það ekki rétt. Við verðum að vera sanngjörn í okkar málflutningi. (Forseti hringir.)

Hvað varðar tillögur Flokks fólksins þá bara kemur það í ljós þegar við greiðum um þær atkvæði.