fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég verð nú að lýsa yfir aðdáun á hv. þingmanni, hvað hún gengur langt í að verja ríkisstjórnina, ríkisstjórn sérhagsmuna og stöðnunar, og hún stendur sig bara þokkalega vel í því en kannski síður að standa vörð um það sem flokkurinn hennar segist standa vörð um. Það er svolítið undarlegt að við, þjóðin, erum í ákveðnum erfiðleikum. Hér eru bankarnir að taka til sín núna á fyrstu þrem mánuðum 20 milljarða kr. hagnað en hv. þingmenn Vinstri grænna og Framsóknarflokksins ljá ekki máls á því — ég ætla ekki að nefna hér Sjálfstæðismenn af þessu tilefni því þeir virðast vera alveg blindaðir á það að uppspretta verðmæta komi úr bönkunum — að þarna eru fjármunir sem ég tel alla vega vera rétt að nýta, menn ljá ekki máls á því að hækka skattinn í það sem hann var fyrir þannig að það sé hægt að bregðast við.
En að öðru máli sem mér leikur forvitni á að vita um. Ég fékk að taka þátt í störfum nefndarinnar undir ágætri verkstjórn hv. þingmanns. En það er þetta með loftslagsmarkmiðin. Það kom alveg skýrt fram þegar ráðuneytin og aðilar komu á nefndarfundi að þetta var kannski ekkert ofarlega í huga stofnana og stjórnkerfisins. Ég hef vissar áhyggjur af því, ef menn meina eitthvað með því að ætla að ná gríðarlegum árangri, að það er eins og stjórnkerfið sé ekki í þessum takti. En svo koma aðilar sem hafa áhyggjur t.d. af skattlagningunni og benda á það augljósa, að þessi fjármálaáætlun mun draga beint úr stuðningi til orkuskipta, m.a. hvað varðar bifreiðaflota landsmanna. Það væri áhugavert að fá það á hreint hvort að þau sjónarmið hafi orðið undir við gerð þessara áætlana.