fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Gott að heyra að maður stendur sig vel, það er alltaf gleðilegt. Ég er ánægð með þessa fjármálaáætlun, svo það sé sagt, og það hefur ekkert að gera með annað en það að ég tel að hún sé að skila því verki sem henni er ætlað að gera. Ég vil segja hér, af því að hv. þingmaður talar um bankaskattinn og er með tillögu fyrir hönd Flokks fólksins um að hækka hann, að hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur látið taka saman gögn um þennan skatt og hvort hann hafi skilað sér að einhverju leyti í því sem við kölluðum eftir. Hún sagði fyrir ekki svo löngu að þetta væri að detta í hús, ég vona það, og það verður bara mjög áhugavert að sjá, af því að ég samþykkti það á sínum tíma að lækka hann. Ég gerði þann fyrirvara að það þyrfti að sjást í því að það skilaði sér að einhverju leyti til okkar.
Varðandi loftslagsmarkmiðin þá er ég ekki alveg sammála hv. þingmanni. Mín upplifun innan fjárlaganefndar er alla vega ekki sú að þeir aðilar í stjórnkerfinu sem komu til okkar á fund væru ekki með hugann þar. Það er meira að segja sérstakur aðili sem vinnur þvert á allt Stjórnarráðið sem er að reyna að samræma markmið stjórnvalda í þessu. Ég verð að minna hv. þingmann á það að við erum ekki að draga úr stuðningi. Við erum að færa til í Orkusjóð. Við erum að færa á gjaldahlið af tekjuhlið. Það er breytingu á framsetningu á því sem varðar styrkina. Nú fara þeir alfarið inn á gjaldahlið og ívilnanirnar sem voru færðar beint út, af því að hv. þingmaður nefndi hérna bílaleigurnar — sá styrkur var færður yfir í Orkusjóð. Þannig að ég held að það sé misskilningur hjá hv. þingmanni að halda þessu fram. Ég trúi því að stjórnsýslan standi saman að því að gera loftslagsmarkmiðin að veruleika.