Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:16]
Horfa

Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):

Forseti vill geta þess að hér varð forseta á þar sem umsamið er að aðeins komi einn þingmaður frá hverjum flokki í andsvar en hv. formaður fjárlaganefndar hefur fallist á að svara fyrra andsvari og síðan lýkur andsvörum. (JFM: Bíddu, ég ætlaði að fá sekúndu til míns andsvars. Ég bað um …) Hv. þingmaður. Umsamið er að aðeins kæmi einn þingmaður frá hverjum þingflokki í andsvör. (JFM: Já, já, en ég á seinna andsvar núna við hennar ræðu, væntanlega.) Það er þegar búið. Andsvararéttur Flokks fólksins er þegar notaður. (JFM: … Ég fékk að breyta ræðu í andsvar með þínu samþykki. Ég óska eindregið eftir því að fá að ljúka máli mínu.) Forseti gerir hlé á þingfundi.