Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:18]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hér er verið að tala um eldra fólk og orðalagið „skatta- og skerðingarlaust“ er notað, þ.e. vegna þess að tekjuauki ríkissjóðs er mjög mikill. Ég vil árétta það sem fjármálastefnan okkar segir um það hvernig við eigum að nota slíkar tekjur, einskiptistekjur eins og gríðarlegur hagvöxtur er að gefa nú, og þá kemur auðvitað útgjaldaauki á móti sem ekki má gleyma, þ.e. hækkandi vaxtabyrði ríkissjóðs. Fjármálaráð hefur ítrekað bent á það að nýta slíkar tekjur til að greiða niður skuldir en ekki til að fara í ný verkefni sem koma til með að kosta okkur inn í framtíðina, bara til að það sé áréttað, það er það sem er lagt til.

Ég vil síðan segja: Sem betur fer er það nú þannig, og gögnin okkar sýna það, að meginþorri eldra fólks hefur það ljómandi gott og því ber að fagna. Við erum auðvitað með hóp undir sem við þurfum að hlúa að áfram og enn betur og það höfum við verið að gera. Ég velti því líka fyrir mér þegar við erum að tala um þetta: Á þetta að eiga við um alla, skatta- og skerðingarlaust? Á allt eldra fólk sem er úti á vinnumarkaði að fá bætur frá ríkinu óháð tekjum? Er það það sem hv. þingmaður er að segja? (JFM: Nei.) Með því að afnema þetta og hafa þetta skatta- og skerðingarlaust þá er það kannski undir. Hv. þingmaður nefndi töluna 400.000 kr. En eins og ég segi: Það allra mikilvægasta í þessu máli er að horfa til þess hvernig tekjurnar eru að myndast og nýta þær, eins og fjármálaráð bendir okkur á, til að greiða niður skuldir en ekki til að stofna til nýrra framtíðarútgjalda.