fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir að fá að beina hér aftur spurningu að hv. formanni fjárlaganefndar. Ég hafði fyrir því í fyrra að hefja útreikning á því hvað þetta myndi kosta ríkissjóð, þessi 350.000 kr. krafa skatta- og skerðingarlaust, og er síðan búinn að uppreikna hana fram til dagsins í dag. Þetta reyndust í það heila vera 53 milljarðar. En ef reiknað er með fjárhagslegu áhrifunum sem koma til baka, þ.e. virðisaukaskattinum sem kæmi inn og öðrum fjárhagslegum áhrifum — og þetta var gert með ráðum og fulltingi bestu hagfræðinga og sérfræðinga — yrðu það 35 milljarðar sem þetta myndi kosta; uppreiknað tæplega 40 milljarðar.
Miðað við 90 milljarða afgang umfram áætlanir þá tel ég að í ljósi aðstæðna á Íslandi — meðallaun eru tæplega 900.000 kr. hjá fullvinnandi fólki og við erum að tala um fólk sem er búið að vinna fulla vinnu alla sína ævi, komið á efri ár og er ekki í aðstöðu til að mæta þessum hækkandi verðum á öllum vígstöðvum. Ég tel að það sé versti og ljótasti bletturinn á samfélagi okkar að skilja fólk eftir við fátæktarmörk með þessum hætti. Ég nefni að hér á Íslandi voru a.m.k. tveir félagshyggjuflokkar sem settu sig í ríkisstjórn ásamt þeim flokki sem einu sinni kallaði sig stærsta jafnaðarflokk Íslands, sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði og gæti hugsanlega orðið það aftur: Eru Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn, félagshyggjuflokkurinn, virkilega ekki til í það jöfnunartæki sem hér blasir við okkur sem er að veita sívaxandi tekjum ríkissjóðs í að afnema þennan smánarblett af samfélaginu, sem er sá ömurlegasti sem maður getur hugsað sér?