fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Það er kannski akkúrat þetta sem ég var að reyna að koma hér að áðan: Þennan 90 milljarða viðsnúning sem er núna munum við örugglega ekki sjá á næsta ári eða þar næsta, að hann dobblist eitthvað. Við verðum að hafa í huga að við erum ekki endilega að tala um framtíðartekjuauka. Þessi viðsnúningur núna er vegna ástandsins sem við búum við og það er líka útgjaldaauki á móti. Vextir ríkissjóðs eru líka að hækka og lífeyrisskuldbindingar eru líka að hækka á móti. Vegna hagvaxtarins þá virkar þetta svona. Ég tek þess vegna undir það með fjármálaráði að þegar við fáum svona tekjur sem eru tímabundnar þá eigum við að nota þær til að keyra niður skuldir ríkissjóðs og búa í haginn fyrir framtíðarþjóðfélagið okkar í staðinn fyrir að ráðstafa þeim og þurfa svo jafnvel að leita eitthvað annað til að geta viðhaldið þeim nýju útgjöldum.
Ég verð auðvitað að halda því til haga að við höfum verið að gera mjög margt í þágu þessa hóps. Við getum alltaf gert betur en við höfum verið að gera mjög margt. Við höfum farið í margar aðgerðir er varða lágtekjufólk, einstæða foreldra og barnafjölskyldur. Við bjuggum til eitt skattþrep í viðbót. Við hækkuðum þrepamark í persónuafslætti um áramótin. Við hækkuðum um 50% í vaxtabótakerfinu. Við hækkuðum barnabæturnar og það eru hærri grunnfjárhæðir og skerðingarmörk og alls konar. Við höfum verið að reyna að ná þétt utan um þennan hóp. Skattar á heimili landsins eru í raun að lækka um 6 milljarða.
Ég vil bara, virðulegi forseti, halda þessu til haga. Það skiptir máli inn í samtalið að muna það sem við erum þó búin að gera en halda því til haga að við getum haldið áfram að gera betur.