Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:49]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varamaðurinn fær hér að taka á því, en takk fyrir ræðuna. Ég þekki það, það er ekki auðvelt að stíga inn þegar maður hefur ekki setið undir allri umræðunni sem búin er að eiga sér stað í vetur. En ég treysti því alveg að hv. þingmaður geti svarað því sem ég kem til með að spyrja um. Það er margt í nefndaráliti hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar sem situr með okkur í fjárlaganefnd sem ég get tekið undir eins og að það sé ekki hægt að sjá stöðumat á lögbundnum verkefnum ríkisins þannig að við í nefndinni getum lagt mat á það o.s.frv. Það er margt gott þarna undir. Það sem mig langaði hins vegar að spyrja hv. þingmann út í, af því að ég gæti hafa misst af því, er að setja fjármagnstekjuskattinn, sem er tæpur 41 milljarður, undir skatttekjur. Mér finnst þetta mjög ódýrt vitandi það að þetta á að taka gildi á næsta ári og til þess að þetta geti gengið þá þarf að ráðast í gríðarlegar breytingar, lagabreytingar, á kerfinu.