fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Það er rétt að tillögur eru góðra gjalda verðar en þegar maður er að leggja fram tillögur í jafn mikilvægu máli og fjármálaáætlun finnst mér að maður þurfi að upplifa að það sé trúverðugt. Ég er sammála því að kerfisbreytingar geta tekið langan tíma og sjálf hef ég lagt fram mál m.a. til þess að loka ákveðnu gati þegar kemur að reiknuðu endurgjaldi. Mig langaði hins vegar að mótmæla því sem hv. þingmaður hélt hér fram, þ.e. að ekkert nýtt hafi komið fram í þeim tillögum sem voru kynntar hér á mánudag. Ég er algerlega ósammála og ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður sé sammála því að flýta fjármálareglunum, sem bæði AGS og fjármálaráð lögðu að okkur að gera, og það sé mikilvægt að leggja það til og stefna að því. Við höfum auðvitað trú á ríkissjóði og efnahagslífinu hér til þess að þetta geti gengið eftir. Það ásamt tillögunum í húsnæðismálunum og aukna stuðningnum við það, a.m.k. þær tvær tillögur þó að ekki væri annað — ég trúi að hv. þingmaður sé mér sammála um að þær eru alla vega nýjar.