Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:55]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Er hægt að nýta fjármunina betur? Já, ég held að eitt af því sem er dálítið vandamál við það hvernig við gerum fjárlög og fjármálaáætlanir sé að við erum alls ekki með nógu djúp gögn. Við erum ekki að fara nógu djúpt ofan í liðina og átta okkur á því hvar sé í raun hægt að gera betur. Þegar heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa er 79 milljarðar þá er voða erfitt að segja, ef það er dýptin sem við höfum á upplýsingum, hvar hægt er að gera betur. Hafandi starfað í stóru alþjóðafyrirtæki þar sem við gátum skoðað mjög djúpt ofan í öll gögn um það hvar væri verið að eyða og í hvað, þá finnst mér svolítið eins og ég sé kominn aftur til 1950 þegar kemur að því hvernig unnið er með gögn og tölur. Svona pdf-vinna er bara — þetta er bara síðasta öld.