Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:56]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég get tekið undir það. En það eru kannski skilaboðin sem við erum að senda sem fjárlaganefnd inn í heilbrigðiskerfið og víðar, að þau þurfi að afla sér gagnanna, það sé þeirra í framkvæmdarvaldinu, að við séum að setja þeim það verkefni að fara betur með fjármuni hins opinbera. Það á að vera í staðinn fyrir að koma hingað og gagnrýna það að við séum ekki að áætla nógu mikla peninga heldur eigum við frekar að segja: Heyrðu, þið þurfið bara að finna betur út hvernig það ætti að nýta peningana og þið verðið væntanlega að finna gögn og annað slíkt til þess. En Píratar leggja líka til auknar aðgerðir og enn fleiri stofnframlög. Hvernig sjá Píratar það fyrir sér að fjármagna þessar aðgerðir á húsnæðismarkaði? Er það gegnum aukna gjaldtöku eða vilja þeir draga úr umfangi einhverra annarra aðgerða á móti?