Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[14:57]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í okkar tillögum koma m.a. fram hugmyndir sem ég og hv. þingmaður vorum að ræða hér á undan, þ.e. um að leggja af fjármagnstekjuskattinn og skattleggja í staðinn hagnað sem tekjur. Það yrði til þess að það yrðu auknar tekjur inn í ríkissjóð sem gæti þá farið á móti sumum af þessum útgjöldum. Þurfum við að hugsa um fleiri tekjumöguleika? Já, ég tel t.d. að við þurfum að hugsa út í það hvernig þær 2,5 milljónir ferðamanna sem hingað koma taka þátt í uppbyggingu innviða hér. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða. Vonandi samþykkjum við hér seinna í dag örlitla sneið af því að fjármagna varaflugvellina með pinkulitlum peningum. Við eigum að gera miklu meira af þessu.