fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans framsögu hér. Ég vil beina til hans spurningu varðandi það sem kom fram hjá honum um þessa 38,4 milljarða, þ.e. hann leggur til að hækkun á útgjöldum til skipulags- og húsnæðismála verði 38,4 milljarðar, ef ég skildi hann rétt. Hann telur þessa fjármálaáætlun algerlega óraunhæfa og það kemur svo sem ekki á óvart úr þeirri átt. En mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvaða áhrif hann telur að þessir 38,4 milljarðar í aukin útgjöld, sem Píratar leggja hér til, hafi á verðbólguna. Það er mjög mikilvægt að fá það fram hjá hv. þingmanni vegna þess að þetta eru veruleg útgjöld og það er þáttur í því að draga úr verðbólgunni að draga úr umsvifum hins opinbera og minnka þá útgjöld og peningaflæði. Ég bið hv. þingmann að svara þessu.