Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:00]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mig langaði að benda hv. þingmanni á hluta af nefndarálitinu og þá ræðu sem ég fór í hér á undan sem fjallar um það hvað hefur áhrif á verðbólguna, þ.e. framboð og eftirspurn. Framboð á húsnæði hefur verið mjög lítið. Með því að fara í aðgerðir sem auka framboð á húsnæði erum við að lækka verðbólguna, verðbólguþrýstinginn. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir að okkur sé kennt að allt sem heitir útgjöld hjá ríkinu hljóti að vera þensluaukandi þá er þetta dæmi um það þegar það hefur önnur áhrif á verðbólguna. (Forseti hringir.) Það er flókið samspil þessara þátta sem orsakar verðbólguna hér á landi, ekki bara einföld hagfræði.