fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Það væri ágætt að hv. þingmaður gæti svarað því hvernig hann hyggist fjármagna þessa 38,4 milljarða, hvort það yrði gert með sköttum eða aukinni skuldasöfnun. Það er mjög nauðsynlegt að fá svör við því. Auk þess hefði ég áhuga á því að hv. þingmaður svaraði þessum tillögum sínum um fjármagnstekjuskattinn, hvort hann leggi þá til — eins og við þekkjum er fjármagnstekjuskattur greiddur af arði af vöxtum, eftir að búið er að greiða tekjuskatt af hagnaðinum og alls kyns skatta og gjöld af starfseminni sem fjárfestingin skapaði. Ef þú tapar fjárfestingunni þá greiðir ríkið þér engar bætur fyrir það, þetta er bara töpuð fjárfesting. Þá er spurning hvort Píratar leggi til að fjárfestar fái tapið bætt líkt og launþegar úr Ábyrgðasjóði launa, ef þeir fá ekki greidda þóknun fyrir sitt framlag til atvinnurekstrarins. Þetta hangir allt saman þannig að það væri gott að hv. þingmaður svaraði þessu og svaraði því hvernig hann ætlar að fjármagna þessa 38,4 milljarða sem (Forseti hringir.) Píratar leggja til, hvort það eru skattar eða aukin skuldasöfnun. Það er ákaflega mikilvægt að fá það fram.