Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:03]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Það er greinilegt að hv. þingmaður var kannski ekki alveg að hlusta á það sem ég var að segja. Við vorum að tala um að skattleggja arðinn og arður og hagnaður er tvennt ólíkt. Ef þú ert að gera fjárfestingar innan fyrirtækja á þann hátt að þú ert með það í eignarhaldsfélagi færðu að sjálfsögðu tap og hagnað til skiptis en við erum að tala um það hvernig arðurinn er tekinn út og að skattleggja það. Já, og nýta það m.a. til þess að auka hlutdeildarlán, auka stofnframlög og annað sem ekki er allt saman gert í beinum útgjöldum heldur líka með lánatilfærslum og öðru. En ég hef því miður bara eina mínútu til að svara þannig að ég náði ekki að komast yfir margt.