Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:04]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Hér eru tveir kaflar sem vekja athygli mína, annar undir yfirskriftinni Vítahringurinn, þar sem er verið að velta fyrir sér vísitölu og tengslum vísitölu við húsnæðislán. Þarna er talað um að það þurfi að rjúfa þennan vítahring. Við erum auðvitað sammála í grunninn um þetta, við erum eins og hamstur á hjóli að hlaupa í hring eftir hring en ég velti fyrir mér hvort þetta sé endilega leiðin. Ef við ætlum að hætta að verðtryggja lán, eins og mér sýnist vera lagt til þarna, erum við þá ekki með því að afnema verðtryggð lán? Mun einhver lána verðtryggt ef lánið hækkar ekki samkvæmt vísitölu? Þá spyr maður: Er þá ekki bara verðtryggt lán úti? Munu þá ekki taka við óverðtryggð lán sem við sjáum hvernig eru að koma í hausinn á fólki þessa dagana?