Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:05]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar og svarið hjá honum hlýtur að vera eitthvað tengt evru. (Gripið fram í.) En vandamálið er að þarna er vítahringur til staðar sem við sjáum að er alltaf að bíta í skottið á sjálfum sér. Hvaða leiðir við förum til að stöðva þennan vítahring — það þarf örugglega vitrari hagfræðinga og vitrari fjármálasérfræðinga heldur en mig til að koma með svarið við því. En fyrsta skrefið er nákvæmlega það sama og fyrsta skrefið í AA, þ.e. að viðurkenna að það sé vítahringur og síðan að vinna í því að afnema hann. Hvaða leiðir förum við þar, verða það óverðtryggð lán eða að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru? Ég veit það ekki. Það eru ýmsar leiðir til. En við þurfum að byrja á því að viðurkenna að þarna sé vítahringur og fara í það gagngert að losa okkur við hann.