Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:07]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Viðreisn er fyrir löngu búin að gera sér grein fyrir þessum vítahring og þykist kunna lausnina við honum og vonandi að fleiri fara að hlusta á okkur hvað það varðar. En hér er svo nefnt í næsta kafla, um leigumarkaðinn og lífeyriskerfi, fjármögnun lífeyrissjóða á húsnæðismarkaðnum, sem ég held að sé bara í eðli sínu góð hugsun, göfug hugsun. En maður spyr: Er hægt að skylda lífeyrissjóði til þess? Lífeyrissjóður er í raun inneign þeirra sem söfnuðu í hann. Getum við á einhverjum tímapunkti bara krafist þess að inneign fólks sé notuð í eitthvað sem við viljum gera? Við myndum ekki fara inn á bankabók einhvers sem á peninga í banka og segja: Heyrðu, við ætlum að nota peninginn þinn í að byggja húsnæði? Þarf ekki að eiga sér stað ákveðið samtal um þetta, það sé ekki hægt að skylda lífeyrissjóði í svona vegferð?