Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:08]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég verð bara að segja við hv. þingmann að ég er algerlega sammála, að sjálfsögðu þarf samtal. En ég held að það sem vanti hjá okkur hér á landi sé það sem við sjáum á Norðurlöndunum, þessar útfærslur á kaupleigu sem eru mismunandi. Við erum með kaupleigusamtök eins og Búseta og annað hér, en þar þarftu samt að eiga dálítið mikið fyrir útborgun. Á Norðurlöndunum getur þú farið inn í slíkt búsetuform án þess að eiga þessa háu upphæð í upphafi en það gerir þér samt kleift að eignast meira og meira í húsnæðinu. Þetta þurfum við að hugsa og við þurfum að sjálfsögðu að gera það í samvinnu við og samstarfi við bæði sveitarfélög og lífeyrissjóðina og ríkið. Við erum með allt of litla valkosti hér á landi, finnst mér, miðað við það sem ég hef kynnst á Norðurlöndunum.