Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:35]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir framsöguna. En þegar leið á hans ræðu þá hélt ég að ég væri staddur á deginum í gær þar sem var eldhúsdagsumræða. En gott og vel.

Það er ekki verið að gera neitt. Það er, held ég, yfirskriftin í því sem kom fram í máli hv. þingmanns, og að við stjórnarþingmenn, landsbyggðarþingmenn, værum þingmenn í lopapeysu sem tilheyrðum aðlinum. Þetta er áhugaverðasta lýsing sem ég hef nokkurn tímann heyrt á hv. þingmönnum landsbyggðarinnar. Mér finnst eiginlega allt í lagi að menn gæti orða sinna í ræðustól Alþingis þegar þeir eru að ræða um starfsbræður sína hér á þingi. Það er áhugavert í því samhengi að benda hv. þingmanni á það sem snýr að húsnæðismálunum á bls. 12 og 13, en við skulum fara betur í það á eftir.