Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni innleggið. Það sem hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu þegar hann fylgdi eftir nefndarálitinu var að það væri í sjálfu sér ekki verið að gera neitt og þar af leiðandi væru húsnæðismálin í algjöru tjóni hjá stjórnarmeirihlutanum. Þá vil ég bara benda hv. þingmanni á að fletta upp á bls. 12 í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Þar er farið ágætlega yfir það hvað verið er að gera og ég hafna því algerlega að stjórnarmeirihlutinn sé ekki að gera eitthvað. Við erum hér með fjármálaáætlun með ákveðnu aðhaldi þrátt fyrir gríðarlega tekjuaukningu upp á 90 milljarða. Þar af leiðandi getum við sagt að þegar við drögum úr útgjöldum þá erum við sömuleiðis að gæta gríðarlegs aðhalds í ríkisfjármálum. Væntanlega getum við gert mun betur. En þegar maður fer yfir nefndarálit frá 2. minni hluta fjárlaganefndar þá get ég ekki séð að þar sé verið að gæta verulegs aðhalds.