Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Eftir þetta stutta andsvar fór ég að spyrja mig í hvaða veruleika þetta ágæta fólk í Framsókn lifði. Hefur það ekkert heyrt af kreppunni á húsnæðismarkaðnum? Hefur það ekkert heyrt af því að það eru mörg hundruð eða jafnvel tugir hundruða umsókna um hverja íbúð sem losnar á leigumarkaði? Hafa menn ekkert heyrt af því að leiguverð sé komið upp úr hæstu hæðum? Hefur fólk ekkert heyrt af þessu í Framsóknarflokknum? Þetta er bara niðurstaðan. Þetta er einfaldlega niðurstaðan af stjórn flokksins og menn geta ekki látið eins og ekkert sé. Það væri miklu betra ef menn viðurkenndu að þetta væri ástand sem þyrfti að lagfæra. Þess vegna sakna ég þess að sjá ekki einhverjar betri aðgerðir hérna aðrar en þær að uppfylla kosningaloforð Samfylkingarinnar í borginni, að menn komi hér með einhverjar myndugar áætlanir og hvatningu í því að gera betur.