Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel mjög auðvelt að ná í aukna fjármuni og jafnvel án þess að leggja sérstakt auðlindagjald á útgerðina. Bara það eitt, frú forseti, að fiskur færi á markað og væri verðlagður á frjálsum markaði myndi strax leiða af sér að sjómenn myndu fá hærri laun, það myndi leiða af sér að skatttekjur hins opinbera yrðu hærri, það myndi leiða af sér að hafnargjöld skiluðu sér að fullu til sveitarfélaga og hagur þeirra myndi batna og það myndi einnig leiða af sér það augljósa; það væri minna svigrúm til að skilja eftir fjármuni í skattaskjólum, í svokölluðum sölufélögum þar, þannig að það er mjög auðvelt. Síðan er alveg ljóst varðandi bankaskattinn — bara þessar upphæðir sem við sjáum hér á fyrstu þrem mánuðum, það er ótrúlegt að fólk staldri ekki meira við það, þá á ég við hæstv. fjármálaráðherra. Þessar gríðarlegu upphæðir sem eru teknar þarna eru ekki teknar einhvers staðar, þær eru teknar af þeim sem skulda í þessum bönkum.