Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar. Mig langar í seinni hlutanum að nefna skuldir ríkissjóðs sem við erum ekki að sjá lagast fyrr en — ja, það er gert ráð fyrir því að ná jafnvægi í ríkisbúskap langt út fyrir þetta kjörtímabil þannig að það mun hvíla á herðum annarra að leysa úr því. Mig langaði að velta því upp hér að það er dýrt fyrir ríkið að skulda, það er dýrt fyrir Íslendinga að skulda. Það er staðfest að við borgum þrefalda vexti miðað við aðrar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við. Væri það ekki mikil kjarabót ef við tækjum á okkur eitthvert högg svona á næstu árum til þess einmitt að draga úr skuldum og [Kliður í hliðarsal.] auka svigrúm okkar til framtíðar til að veita þá þjónustu sem við viljum veita?

(Forseti (JSkúl): Forseti óskar eftir hljóði í hliðarsal.)