Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Sigurjón Þórðarson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Augljóslega er rétt að draga úr skuldum. Það er eitthvað sem hið opinbera ætti að gera og vera ekki að taka lán nema þá fyrir einhverju sem skilar arði. Ég er alveg sannfærður um að það er margt í samgöngukerfinu sem skilar miklum arði og er alveg réttlætanlegt að taka lán út á. En ég held að það sé svo auðvelt fyrir okkar samfélag sem hefur einar hæstu þjóðartekjur í heimi að vera stjórnað miklu betur en nú er. Eins og ég sagði hér í ræðu minni þá er þetta fyrst og fremst áætlun um áframhaldandi sérhagsmuni og óbreytt ástand. Það er mjög auðvelt að gera betur. Ég held að allir þeir sem sjá núna fram á gríðarlegar hækkanir þessa mánuðina, bara í kröfum, gluggapósti frá bönkunum, sjái það einnig í hendi sér.