Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:46]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu, það var fróðlegt að hlusta á hann. Það eru alls konar frasar settir fram, að við séum hér, stjórnarmeirihlutinn, bara að horfa til aðalsins í landinu og útgerðin sé af hinu vonda o.s.frv., þrátt fyrir að hún veiti þúsundum manna atvinnu á Íslandi og gríðarlega miklar útflutningstekjur sem skipta þjóðarbúið verulegu máli. Hv. þingmaður eyddi löngum tíma í að ræða það að ríkisstjórnin hefði ekki boðað aukið aðhald en það eina sem hv. þingmaður leggur síðan til eru aukin útgjöld og hærri skattar, sem munu að sjálfsögðu auka verðbólguna. Það gefur alveg augaleið. Nú leggur hv. þingmaður til hér, fyrir hönd Flokks fólksins, útgjaldahækkun upp á 28 milljarða kr. Telur hv. þingmaður að þetta sé innlegg inn í aðhald og baráttuna gegn verðbólgunni?