fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Mér finnst það koma úr hörðustu átt að hér sé þingmaður Sjálfstæðisflokksins að vanda um fyrir okkur að hér sé ekki sýnd nógu mikil aðhaldssemi í opinberum fjármálum og tillögugerð. Ég vil bara benda á að hér vorum við í hádeginu að leggja til 400 milljónir til fjölmiðla. Það sem við í Flokki fólksins erum að gera er að leggja fram ábyrgar tillögur, að taka af þeim sem eiga greinilega mikið undir hjá valdaflokkunum hér og færa til þeirra sem þurfa á því að halda. Ef það er eitthvað sem við þurfum að passa upp á núna, frú forseti, þá er það að efnahagskreppan verði ekki til þess eins og sú síðasta, að fjölskyldurnar hrekist út úr húsunum. Ég er alveg sannfærður um að hv. þingmaður er mér sammála. Við þurfum að gæta að því að byrðarnar leggist ekki einungis á þá sem minna mega sín í þessu samfélagi.