fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ágætu pólitísku greiningu á stöðunni um samstöðu og ósamstöðu ríkisstjórnarinnar. Þetta er svolítið endurtekið efni frá eldhúsdagsumræðunni í gær hér við fjárlagaumræðuna. Ég get alveg tekið undir margt, að auðvitað skipti miklu máli að við róum svolítið öll í takt og tökumst á við verðbólguna saman og hlustum á það sem seðlabankastjóri segir um aukið aðhald og allt það og er alveg til í þá umræðu. Mig langar þá einmitt að spyrja hv. þingmann, eins og hún giskaði á í ræðu sinni: Hverjar eru þá þessar pólitísku tillögur Viðreisnar hér í fjárlagaumræðunni í því að sýna aukið aðhald? Jú, ég man eftir tekjuöflunartillögum Viðreisnar frá því í fjárlögunum í vor en auknar tekjur eru oft til að mæta auknum útgjöldum eða geta skapað þenslu þannig að við þurfum að sjá hvort allir rammarnir geta unnið saman. Því vil ég fá þá umræðu hér um fjármálaáætlunina, ekki bara hvað við í ríkisstjórninni eru ósamstiga og vonlaus og að við þorum ekki. Ég skal koma inn á mínar tillögur í ræðu minni á eftir en mér þætti vænt um að fá að vita hvort það séu einhverjar tillögur sem þingflokkur Viðreisnar getur komið sér saman um til að takast á við verðbólguna og lækka hér vaxtakostnaðinn og verðbólgu.