Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[16:28]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er dálítið stolt af mér fyrir að hafa giskað á spurninguna og ætla bara að játa það að mér finnst dálítið sætt þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma hingað upp eða þingmenn Sjálfstæðisflokksins skrifa greinar, líka með dálítið sætri vandlætingu; hvað myndi þingflokkur Viðreisnar sjálfur gera? Þá er tvennt í því. Ekki hvað myndum við gera — við lögðum fram tillögur um síðustu jól. Við lögðum fram tillögu um að við myndum flýta niðurgreiðslu skulda um 20 milljarða, konkret tillögu. Hv. þingmaður felldi hana. Allur hans þingflokkur gerði það. Við lögðum fram tillögu um 3 milljarða kr. aðhald í Stjórnarráðinu, fækkun ráðuneyta. Þá get ég rifjað upp með hv. þingmanni að þegar ríkisstjórnin endurnýjaði heitin sín fjölgaði hún ráðuneytum, fjölgaði ráðherrastólum, sem er töluvert á skjön við hugmyndafræði þess flokks sem hann situr fyrir hér á þingi. Við lögðum fram tillögur um hagræðingaraðgerðir. Auðvitað voru þær ekki allar útfærðar í þaula. Við lögðum líka fram tillögu um að ríkisstjórnin myndi halda áfram með sölu á Íslandsbanka. Við töldum þörf á því, töldum vísbendingar og merki þess að ríkisstjórnin myndi ekki treysta sér til að halda áfram. Það er auðvitað allt að ganga eftir. Við sjáum í haust hvað gerist en við vitum það bæði, sitjandi í þessari nefnd, að fjárlögin, fjármálaáætlun gera ráð fyrir tekjum þarna sem er alls óvíst að skili sér inn. Það er búið að leggja niður Bankasýsluna, það er búið að reka fasteignasalann en það á samt að selja húsið. Við lögðum fram tillögur. Jú, við lögðum líka fram tekjuöflunartillögur um hækkun veiðileyfagjalda t.d. En við vorum ekki í því að leggja fram tillögur um aukin útgjöld sem ekki voru fjármögnuð. Við vorum ekki í því að skila fjárlögum um 120 milljarða halla á þenslutíma. Við lögðum fram tillögur, konkret tillögur, um hagræðingu, um greiðslu skulda. Allur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins stóð saman um það að fella þær tillögur.