fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessi svör. Já, mér finnst nefnilega fara minna fyrir hagræðingartillögunum en tekjuöflunartillögum hjá Viðreisn, en það er þá bara þannig. Ég vil líka benda hv. þingmanni á það að afkoma ríkissjóðs frá því í desember hefur batnað um 90 milljarða — batnað um 90 milljarða, og við erum að flýta hér fjármálareglunum og annað slíkt þannig að við höfum skrifað það hér alls staðar inn og unnið að því að lækka skuldirnar. Og þar erum við algjörlega sammála, að það er númer eitt, tvö og þrjú að lækka skuldirnar, og vegna þessarar góðu efnahagsstjórnar hefur okkur tekist að bæta afkomuna um 90 milljarða núna undanfarið.
Varðandi heilbrigðiskerfið þá langar mig að spyrja: Gerir hv. þingmaður athugasemd við það að þingmenn kalli eftir aukinni framleiðni í heilbrigðiskerfinu og að þegar ég kalla eftir betri nýtingu fjármagns í heilbrigðiskerfinu þá sé það aðför að heilbrigðiskerfinu? Heyrði ég það rétt hjá hv. þingmanni? Aukningin á fjármununum hefur verið gríðarleg þar á sama tíma og framlegðin hefur farið niður þannig að ég tel að það séu margar leiðir til að nýta fjármunina og gera enn þá betur þar án þess að draga saman seglin.