fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Fyrst verð ég nú að játa að ég átta mig ekki fyllilega á spurningunni um heilbrigðiskerfið. Ég var í engum kafla þar að ræða um framleiðni en við höfum stutt aukin útgjöld til heilbrigðismála, svo það sé sagt. En af því að hv. þingmaður talar enn þá um það að Viðreisn hafi verið að tala fyrir útgjöldum þegar öll mín svör voru um okkar hagræðingaraðgerðir þá má kannski bæta því við að fyrir utan þessar tillögur okkar um hagræðingar fyrir síðustu fjárlög, sem hv. þingmaður tók þátt í því að fella, þá höfum við t.d. talað fyrir því núna að farið verði í ráðningarbann í ákveðnum greinum á vegum ríkisins. Það hefur ekki hlotið hljómgrunn, eða ég hef ekki heyrt stjórnarliða tala fyrir því. Við vorum líka 2021 farin að tala fyrir því ein hér inni í þingsal að hætta ákveðnum efnahagsaðgerðum í tengslum við Covid og heimsfaraldur. Við höfum auðvitað staðið þá vakt að benda á það, sem er ótrúlegt miðað við hvernig þingmenn Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra talar sjálfur, að ríkisreksturinn var orðinn ósjálfbær á ykkar vakt löngu fyrir heimsfaraldur, löngu fyrir það að hægt væri að tala um einhverja innflutta verðbólgu og Úkraínustríð. Þegar allar aðstæður unnu með Sjálfstæðisflokknum var ríkissjóður ósjálfbær. Þegar núna er verið að tala um stórbætta stöðu, að frumjöfnuður sé að aukast, að ytri aðstæður séu góðar, þetta eru tekjur vegna verðbólgunnar. Ríkið er að hagnast á því. Heimilin eru ekki að því og í því samhengi verður enn þá ljótari leikur að standa ekki með heimilum og fyrirtækjum um það að berjast gegn verðbólgunni.