Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[16:36]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Kannski fyrst um frumjöfnuðinn: Þið megið tala um frumjöfnuð eins mikið og þið viljið og þið talið ansi mikið um frumjöfnuð. Ég er bara að benda á að þegar hæstv. fjármálaráðherra talar eingöngu um frumjöfnuðinn en ekki heildarmyndina er hálf sagan sögð. Ég er ekki að gera athugasemdir við þetta orð og hef upplifað það með þeim hætti að fjármálaráðherra sé mjög djúpt skotinn í þessu orði og þá notar hann það bara áfram. En frumjöfnuður segir ekki alla söguna, það er nú punkturinn.

Við höfum rætt ferðaþjónustuna töluvert í fjárlaganefnd og ég er einlæglega þeirrar skoðunar að við sem þjóð stöndum í töluverðri þakkarskuld við þá atvinnugrein. Hún kom okkur heldur betur til góða á mjög erfiðum og þungum kafla. Ég sé málið frekar þannig að vegna þess að við höfum metnað fyrir greininni, vegna þess að við berum taugar til greinarinnar þá eigum við líka að hafa metnað fyrir því að móta stefnu í kringum hana þannig að andrúmsloftið hjá almenningi verði henni ekki óhagstætt. Ég hef verið þeirrar skoðunar að það mætti skoða t.d. hvernig megi beina ferðamönnum betur um landið allt, af því að ég sé ferðaþjónustuna raunverulega sem sterkt og mikilvægt byggðamál. Eins og staðan er í dag sjáum við það bara á öllum þeim tölum sem t.d. birtast okkur inni í fjárlaganefnd; 2 milljónir ferðamanna, þetta hefur afleiðingar á húsnæðismarkaði, ekki síst í Reykjavík. Það eru ferðamennirnir og síðan er það allt fólkið sem hingað kemur og þarf einhvers staðar að búa líka. Gott og vel, en þá er ekki bara hægt að tala um að það þurfi að leysa málin á húsnæðismarkaði með auknu framboði, ef stjórnvöld hafa enga innsýn í það hver eftirspurnin er eða hver fólksfjöldinn er. Hv. þingmaður hefur auðvitað heyrt lýsingar Landspítalans líka. Hvaða áhrif hefur það á yfirfullan spítalann (Forseti hringir.) þegar ferðaþjónustan eða ferðamennirnir bætast við og það er ekki gert ráð fyrir þeim í neinum plönum?