Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[17:06]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans framsögu hér sem var um margt áhugaverð þótt ég deili ekki skoðunum hans hvað varðar hælisleitendur. Ég tel að við þurfum að vinna það með öðrum hætti heldur en hv. þingmaður nefnir hér. En mér finnst margt áhugavert í hans vangaveltum um stöðu ríkisfjármála og meðan ég sat í sætinu mínu var ég að velta fyrir mér orðfærinu sem verið er að nota. Það er mikill hagvöxtur og frumjöfnuður er góður. Maður reynir að setja þetta í eitthvert samhengi. Hvernig stendur á því að við erum með mikinn hagvöxt og hvað það er sem gerir að verkum að hagvöxtur er góður á Íslandi, andstætt því sem er að gerast í mörgum öðrum löndum? En svo þegar maður fer að skoða eitthvað sem heitir viðskiptahalli, ég held að ég fari rétt með að viðskiptahalli síðasta árs hafi verið u.þ.b. 80 milljarðar, þá spyr maður sig að því: Hvers vegna er þessi hagvöxtur? Þegar maður setur hann í samhengi við viðskiptahallann, er þetta ekki bara skuldsetning við útlönd sem við erum að búa til með þessum hagvexti sem verið er að hreykja sér af hérna dagsdaglega og góðum frumjöfnuði? Eins og hv. þingmaður nefndi hér þá er frumjöfnuður bara í miðjunni, þar fyrir neðan eru skuldir sem geta snúið öllu á hvolf ef þær eru ekki í lagi. Mig langar að biðja hv. þingmann að velta þessu fyrir sér, ég heyri að hann er bara djúpur í umræðunni um efnahagsmál, samspilinu á milli hagvaxtar og viðskiptahalla sem blasir við okkur öllum.