Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[17:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef nú ítrekað lýst því yfir hér í pontu að ég hafi miklar áhyggjur af því að peningaprentun í gegnum Covid-tímabilið sé að nokkru marki um að kenna hvað verðbólguþrýstinginn núna varðar. Peningamagn í umferð var aukið umtalsvert og það hefur keyrt áfram hagvöxtinn undanfarið. Það blasir bara við, ef menn reyna að taka einhverja skynsemisskoðun á stóru myndinni, að það getur ekki verið að það sé raunhæf mynd að atvinnulífinu sé skellt í hægagang í tvö ár á tímabili heimsfaraldurs og á sama tíma vaxi kaupmáttur flestra hópa. Það getur ekki endað öðruvísi en með verðbólguskoti eða verðbólguþróun eins og við erum núna að verða vör við. Hagvöxturinn er til kominn vegna þessa annars vegar og hins vegar þess að auðvitað er atvinnulífið að rétta úr kútnum eftir þetta tveggja ára tímabil eða hvað það var nú langt sem stjórnvöld viðhöfðu takmarkanir hér á rekstur fyrirtækja í landinu.

En síðan er hitt hárrétt sem hv. þingmaður bendir á sem snýr að viðskiptajöfnuðinum. Hann er auðvitað vondur margra hluta vegna, hann veikir krónuna sem aftur setur þrýsting á verðbólgu og þar fram eftir götunum. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur sem þjóð að komast aftur á þann stað að vera með jákvæðan viðskiptajöfnuð við útlönd og að hann verði myndarlegur. Ég treysti mér ekki alveg til að leggja mat á vangaveltur hv. þingmanns varðandi samspil viðskiptajafnaðarins og hagvaxtar dagsins í dag. Ég þyrfti bara að gefa mér tíma til að skoða akkúrat það atriði. (Forseti hringir.) En það er mikilvægt að við komumst sem allra fyrst í jákvæðan viðskiptajöfnuð gagnvart útlöndum.